Hlutverk næringarefnanna er aðalega þrenns konar, veita líkamanum orku, efni til uppbyggingar og viðhalds vefja og efnasambanda einnig stilla þau og stjórna efnaskiptum í líkamanum.
Kolvetni: gefa orku og veita nauðsynleg trefjaefni. Lýðheilsustöð mælir með að 50-60% af orkunni komi úr kolvetnum og aðeins 10% orkunnar úr viðbættum sykri.
Fita: gefur orku, veitir lífsnauðsynlegar fitusýrur og er nausynleg fyrir nýtingu fituleysanlegra vítamína. Í ráðleggingum lýðheilsustöðvar er mælt með því að fita gefi 25-30% af orkunni, hörð fita má ekki gefa meira en 10% af orkunni.
Prótein: eru byggingar og viðhaldsefni fyrir vefi líkamans og próteinsambönd gefa orku. Lýðheislustöð mælir með því að prótein veiti 10-20% af heildarorku.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli