Meltingin kolvetna hefst í munni þegar munnvatnskirtlar byrja aðeins að kljúfa fljölsykrur í tvísykrur, restin af fjölsykrunum klofna í tvísykrur í skeifugörn. Lokastig meltingar kolvetna er í ásgörn þar sem allar tvísykrur klofna í einsykrur. Sumar fjölsykrur eru ómeltanlegar og þær berast til ristils.
Fitan er að mestu leyti klofin niður í fitusýrur í meltingunni. Það má segja að melting fitu hefjist ekki fyrr en í skeifugörninni. Þar kemur gallið til sögunar, það blandast fæðuinni og brýtur fituna niður í örsmáa fitudropa og brissafa. Ensímin í brissafanum losa fitusýrurnar frá glýserólinu. Fitan klofnar í fitusýrur og glýseról í smáþörmunum og kemst þannig í gegnum þarmaslímhúðina.
Melting próteina hefst í maganum. Saltsýran í maganum virkjar magaensím sem losa um amínósýrukeðjarnar og mynda stór peptíð. Í skeifugörninni kemur brissafinn aftur til sögunar líkt og hjá fitunni, ensímin í honum klífur stóru peptíðin niður í minni peptíð. Loks klofna peptíðin í amínósýrur í ásgörninni.
Næringarefnin frásogast aðalega í smáþörmunum, það er flutningur næringarefna úr meltingarvegi yfir í blóð og sogæðar. Einsykrur og amínósýrur fara í portæðina og ferðast þaðan í lifrina, sem kemur þeim svo áfram útí blóðrásina eftir þörfum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli