föstudagur, 22. nóvember 2013

Neysluvenjur!

Mikilvægt er að þú fylgir leiðbeiningum okkar þegar kemur að mataræði og neysluvenjum. Haltu þig við það að borða reglulega og úr öllum fæðuflokkum. Magnið sem við höfum sett upp fyrir þig fyrir hverja máltíð er eitthvað sem þú þarft að fara eftir. Sykur er ekki bara sykur, viðbættur sykur og unnin sykur er ekki æskilegur við viljum frekar að þú leitir í náttúrulegan sykur. Sama má segja um fitu. Mettuð fita eins og smjör og kókasolía er ekki holl, frekar viljum við að þú neytir ómettaðar fitu eins og jurta- og sojaolía. Ef þú ert að borða reglulega og fæði líkt og við höfum sett upp fyirr þig þá áttu ekki að þurfa að bæta við fæðubótaefnum. Eina sem þú þarft að gera er að skoða aðeins það sem þú setur ofan í þig, hvort þú sért að innbyrða nóg af kolvetnum, fitu og próteinum. Nammidagar eru ágætir ef rétt er staðið af þeim. Þar að segja ekki missa sig í sukkinu. Haga nammideigi frekar þannig að þú leyfir þér pizzu eða hamborara og smá nammi.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli