sunnudagur, 1. desember 2013

Jæja Pétur

Nú skulum við aðeins fara yfir fæðutegundirnar og ráðleggingar varðandi þær. Fæðuhringurinn hefur mest verið notaður til að kenna nemendum að byggja upp hollar máltíðir og rétta samsetningu fæðunar í heild. Við ætlum aðeins að fara nánar útí hann svo þú áttir þig betur á mikilvægi hverrar fæðutegundar. Fæðuhringnum er skipt í sex mismunandi flokka, eftir tegundum og næringargildi þeirra.

Brauð og aðrar kornvörur, grænmeti kartöflur og baunir, ávextir og ber, kjöt, fiskur og egg, mjólk og mjólkurmatur og svo feitmeti.

Fyrir einstakling sem brennir 4030 kcal á sólarhirng líkt og þú ert að gera þá er eftirfarandi dagsneysla talin æskileg:




340 g af kornmat, rúmmlega helmingur á að vera heilkornsmatur.
1000 g af grænmeti.
800 g af ávöxtum.
1400 ml af mjólk eða samsvarandi af mjólkurmat.
300 g af kjöti eða samsvarandi af fiski eða baunum.
14 tsk. af olíu.